Hvað skal hafa í huga þegar að leiguvarningi er skilað?
Við viljum vinsamlega benda á að samkvæmt leigusamningi skal hafa ákveðin atriði í huga þegar kemur að skilum á leiguvarningi til að koma í veg fyrir tafir og aukakostnað fyrir leigutaka.
Skil á þungavöru verður að tilkynna inn með sólarhrings fyrirvara í síma 564-6070
(Ekki í beint númer starfsmans eða tölvupóst.)
Með starfsmanni er fundinn laus tími innan opnunartíma þunguvörulagers sem er:
Mánudaga – fimmtudaga frá 8:00 – 11:00 og 13:00 – 16:00
Föstudaga frá 8:00 – 11:00 og 13:00 – 15:00
Steypumótum og aukahlutum skal skilað:
-
Flekum raðað snyrtilega í stæður eftir stærðum
-
Krossviður á öllum flekum skal snúa upp
-
Aukahlutir flokkaðir í rekkum og geymsluboxum eins og þeir voru afhentir
-
Allar vörur uppraðaðar á þann hátt að hægt sé að taka þær af með lyftara
-
Aukahlutir skulu vera saman settir / sundur teknir eins og þeir voru afhentir
-
Vörur hreinar og flokkaðar
-
Í samráði við starfsmann með sólarhrings fyrirvara í síma 564-6070








Veggjapöllum og aukahlutum skal skilað:
-
Rammar flokkaðir sman í rekka eftir stærðum eins og þeir voru afhentir
-
Gólfborð raðað í rekka og gólf með lúgu skilu vera efst
-
Aukahlutir flokkaðir í rekkum og geymsluboxum eins og þeir voru afhentir
-
Allar vörur uppraðaðar á þann hátt að hægt sé að taka þær af með lyftara
-
Aukahlutir skulu vera saman settir / sundur teknir eins og þeir voru afhentir
-
Vörur hreinar og flokkaðar
-
Í samráði við starfsmann með sólarhrings fyrirvara í síma 564-6070




Frá og með 2. ágúst 2022 mun viðkomandi verða vísað frá eða auka afgreiðslugjald lagt ofan á afgreiðsluna ef ekki hefur verið tilkynnt um skil á vörum með sólarhrings fyrirvara og / eða ef vörum er ekki skilað samkvæmt ofangreindum lista.
Opnunartími á þungavörulager er mánudaga til frá 8:00 – 11:00 og eftir hádegi Frá 13:00 – 16:00
Samkvæmt leiguskilmálum skal tilkynna um skil á leiguvarningi með sólarhrings fyrirvara.
Passa þarf því að hafa samband við afgreiðslu Kvarna ehf.
í síma 564-6070 (ekki í beint símanúmer eða tölvupóst starfsmanns).
Í samráði við starfsmann í afgreiðslu skal ákveða skilatíma á leiguvarningi.
Skil á steypumótum og aukahlutum.
Mótaflekum skal vera raðað saman eftir stærðum og passa að krossviðurinn snúi upp á öllum flekum.
Öllum vörum skal raðað þannig á bílinn að aðvelt sé að taka þær af með lyftara.